Lokahóf & verðlaunaafhending Meistaramóts 2025 á Korpunni á laugardag!

Lokahóf & verðlaunaafhending í Meistaramóti GR 2025 verður haldið á Korpunni næstkomandi laugardag, 12. júlí. Allir þátttakendur í Meistaramóti fá afhentan aðgöngumiða í lokahóf á síðasta keppnisdegi sem framvísa þarf hjá starfsfólki í veitingasölu þegar mætt er á laugardag.

Salurinn opnar kl. 18:00 og boðið verður upp á ljúffengar veitingar að hætti Klúbbhús, miðað við fjölda keppenda má reikna með að salurinn verði að minnsta kosti tvísetinn og því kjörið að mæta snemma og fylgjast með keppendum í meistaraflokk ljúka leik. Live-skor verður birt á skjá á báðum hæðum hússins.

Verðlaunaafhending er áætluð um kl. 21:00 og þegar klúbbmeistarar GR 2025 hafa verið krýndir mun 500 kallinn, Jón Sig., keyra stuðið upp og í framhaldinu mun DJ Búi halda stemmningunni gangandi og mun skemmta gestum á fyrstu hæðinni til kl. 01:00 þegar húsið lokar.

Fyrir þá sem ekki taka þátt í mótinu en vilja mæta á Lokahóf – borða og gleðjast með keppendum – þá er hægt að kaupa miða í veitingasölu Klúbbhús á Korpu, miðaverð er 7.250 kr.

Nokkur atriði:

  • 20 ára aldurstakmark er á svæðið
  • Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í Lokahóf
  • Mikilvægt er að muna eftir aðgangasmiða

Hlökkum til að gleðjast með ykkur á lokahófinu!
Golfklúbbur Reykjavíkur