Börn & unglingar

Metnaðarfullt barna- og unglingastarf, ætlað aldurshópnum 6-18 ára, er rekið allt árið hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Starfið hefur alið af sér kylfinga sem eru meðal þeirra fremstu og hefur skilað klúbbnum glæsilegum sigrum í öllum flokkum.

Barna- og unglingastarf klúbbsins fer fram undir handleiðslu vel menntaðra PGA golfkennara sem leggja metnað sinn í að kynna allar hliðar golfíþróttarinnar fyrir ungmennum. Mikið er lagt upp úr því að auka færni og hjálpa þeim að mótast sem kylfingar og einstaklingar í heilbrigðu umhverfi.

Við tökum vel á móti nýjum iðkendum og bjóðum þá hjartanlega velkomna í hópinn. Öllum er velkomið að koma og prufa æfingar hjá okkur. Við vonumst til að sem flestir finni sig vel í starfinu og hafi gaman af því að stunda golfæfingar í góðra vina hópi.

Hægt er að er ráðstafa frístundarstyrk sveitarfélaga upp í æfingagjöld hjá klúbbnum.


Æfingatafla
Heils/hálfsárs

Skráning

Skráningar í barna- og unglingastarf fara fram í gegnum XPS félagakerfi

Frekari upplýsingar um barna- og unglingastarf veitir Berglind Björnsdóttir í síma 5850200 eða í gegnum netfangið berglind@grgolf.is


Æfingagjöld
2023

Golfklúbbur Reykjavíkur býður upp á anars vegar heilsárs og hálfsárs æfingar fyrir börn & unglinga.

Hægt er að nýta frístundastyrk sveitafélaganna til ráðstöfunar á æfingagjöldum. 

Heilsársæfingar, kr. 75.000
Æfingar frá janúar-desember
Allt að sex æfingar í viku
Aðgangur að völlum GR
Spil undir merkjum GR
Mótaraðir
Meistaramót
GR merkt flík
Æfingaferð erlendis
Líkamsþjálfun
Hugarþjálfun
Fyrirlestrar
Aðrir viðburðir

Hálfsársæfingar, kr. 45.000
Æfingar frá júní-desember
Allt að sex æfingar í viku
Takmarkaður aðgangur að völlum GR (fyrir kl. 14:00 á virkum/eftir kl. 14:00 um helgar)
Spil undir merkjum GR
Mótaraðir
Meistaramót
Aðrir viðburðir


SAMSKIPTARÁÐGJAFI ÍÞRÓTTA OG ÆSKULÝÐSSTARFS

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs hefur það markmið að auka öryggi í íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Markmiðið er að allir geti tekið virkan þátt á sínum vettvangi og jafnframt leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem hafa átt sér stað án þess að óttast afleiðingar.

Þjónusta og ráðgjöf samskiptaráðgjafa stendur öllum þeim til boða sem tilheyra skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi á landinu.

Hægt er að fá ítarlegri upplýsingar um starf samskiptaráðgjafa með því að smella á hnappinn hér til hliðar


id: 31454
title: Lokahóf barna og unglinga fór fram á miðvikudag
date: 23.9.2022 10:27:00
publishdate: 23.9.2022 10:27:00
metadescription:
metatitle:
index: 0
folders: Börn & unglingar,Barna og unglingastarf,2022
linkto: /lokahof-barna-og-unglinga-for-fram-a-midvikudag
friendlyurl: lokahof-barna-og-unglinga-for-fram-a-midvikudag