Þá er komið að öðru Bingó-i eldri kylfinga árið 2026 sem verður haldið, á morgun, fimmtudaginn 12. febrúar.
Bingó er liður í vetrarstarfi eldri kylfinga klúbbsins, 65 ára og eldri og hefst það stundvíslega kl. 10:00 í veitingasal Korpu. ATH! Fyrsta bingóspjaldið kostar 1000 kr. hvert spjald umfram það kostar 500 kr.
Í hléi er boðið er uppá kaffi, kleinur og gos.
Bingóspjaldið kostar kr. 500 og er tekið við greiðslum bæði með pening og korti. Almennt er vel mætt á þennan mánaðarlega viðburð eldri kylfinga og eru flottir vinningar í boði.
Við hvetjum þá félagsmenn, sem hafa náð 65 ára aldri, til að mæta og taka þátt í bingóviðburðum fram á vorið.
Golfklúbbur Reykjavíkur

