BINGÓ! Fyrsta Bingó eldri kylfinga 65+ verður fimmtudaginn 20. nóvember!

Bingó er liður í vetrarstarfi eldri kylfinga klúbbsins, 65 ára og eldri og byrja margir daginn á því að pútta saman á efri hæð Korpunnar áður en bingó hefst í veitingasal kl. 10:00. ATH! Fyrsta bingóspjaldið kostar 1000 kr. hvert spjald umfram það kostar 500 kr.

Nú eru bingódagarnir á fimmtudögum.

Í hléi er boðið er uppá kaffi, kleinur og gos.

Bingó verður haldið þessa daga í vetur:

  • 20. nóvember 2025
  • 11. desember 2025
  • 15. janúar 2026
  • 12. febrúar 2026
  • 12. mars 2026

Almennt er vel mætt á þennan mánaðarlega viðburð eldri kylfinga og eru flottir vinningar í boði. Við hvetjum þá félagsmenn, sem hafa náð 65 ára aldri, til að mæta og taka þátt í bingóviðburðum í vetur.

Golfklúbbur Reykjavíkur