Framkvæmdir eru hafnar við breytingu og stækkun á aðkomusvæði framan við klúbbhús GR á Korpúlfsstöðum. Með framkvæmdunum stækkar aðkomusvæðið um u.þ.b. 270 fermetra.
Á hinu nýja svæði verður m.a. ný þrifaðstaða fyrir búnað og skó og stæði fyrir golfbíla. Svæðið að öðru leyti verður endurbætt og gert rúmbetra. Nýtt svæði verður allt hellulagt og áhersla lögð á snyrtilega og vandaða umgjörð sem fellur vel að umhverfi klúbbhússins.
Áætlað er að framkvæmdum ljúki fyrir vorið. Að venju munum við halda félagsmönnum upplýstum um framgang verksins og leyfa ykkur að fylgjast með stöðu framkvæmda.



