Dagbjartur Sigurbrandsson hafnaði í 8. sæti á GolfStar Winter Series Dunes mótinu sem fór fram á Empordá golfsvæðinu á Spáni. Mótið er fyrsta mót ársins á Nordic Golf League atvinnumannamótaröðinni, sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki mótaraða í Evrópu í karlaflokki.
Íslandsmeistarinn lék hringina þrjá á 69-68-69 höggum og var í heildina á átta höggum undir pari.
Keppt var á tveimur völlum, Forest og Dunes. Keppendur léku á báðum völlunum fyrstu tvo dagana og léku Dunes völlinn á lokahringnum. Næsta mót hjá Dagbjarti hefst á morgun en mótið fer einnig fram á Empordá golfsvæðinu.

