Dagbjartur Sigurbrandsson einn af atvinnukylfingum okkar hefur lokið keppni á öðru móti ársins á Nordic Golf League mótaröðinni á Spáni.
Dagbjartur lenti í 8. sæti í fyrra mótinu á Empordá golfsvæðinu og fylgdi því á eftir með því að lenda í 16. sæti í seinna mótinu í dag. Hann lék hringina þrjá á 69-69-71 höggum og var í heildina á sex höggum undir pari.
Nú hefur Dagbjartur færst sig um set og munu taka þátt í þremur mótum á Infinitum golfsvæðinu í Tarragona. Fyrsta mótið í seríunni hófst í gær og hægt er að fylgjast með Dagbjarti og öðrum íslenskum kylfingum í mótinu með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

