Dagbjartur lauk leik í 11. sæti á sínu fyrsta móti!

Dagbjartur Sigurbrandsson og Hákon Örn Magnússon voru meðal íslenskra keppenda Esbjerg Open mótinu í Nordic golf League, sem fram fór dagana 10.-12. september í Danmörku.

Dagbjartur lék í sínu fyrsta móti í Nordic Golf League og lauk leik jafn í 11. sæti. Hann lék á pari í mótinu eftir hringi upp á 67-71-75 högg. Aðstæður voru erfiðar og 11. sætið góður árangur á fyrsta móti Íslandsmeistarans á mótaröðinni.

Hringir Dagbjarts

Hákon Örn lék á 71-75 höggum og náði ekki í gegnum niðurskurð.