Dagbjartur Sigurbrandsson ássamt Hlyn Bergssyni og Sigurði Arnari Garðarssyni eru á meðal keppenda í Nordic Golf League móti sem hófst í Danmörku í dag.
Eftir fyrsta hring er okkar maður, Dagbjartur Sigurbrandsson efstur meðal mann en hann lék opnunarhringinn á -5 eða 67 höggum – vel gert Dagbjartur, áfram GR!
Dagbjartur er í 31. sæti stigalistans, efstur Íslendinganna.
Mót vikunnar á Nordic Golf League er Royal Unibrew Championship. Leikið er á Royal Oak vellinum rétt fyrir utan Kolding. Völlurinn er par 72 og yfir 6.400 metra langur. Hann gæti reynst kylfingum krefjandi en er á einstaklega fallegu svæði, líkt og sjá má á mynd hér að neðan.

Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu.


