ECCO púttmótaröð GR karla hefst á morgun!

Púttmótaröð GR-karla hefst á Korpu 22. janúar nk.

Ecco-Mótaröðin hefst fimmtudaginn 22. janúar og stendur yfir í 8 vikur. Mæting er frá 13:00 til 20:00. Lokakvöldið verður svo föstudagskvöldið 13. mars.

 Skráning

Til að flýta fyrir skráningu væri gott að fá tölvupóst frá þeim sem ætla að vera með.

Hvort sem lið verða eins og í fyrra eða breytast eitthvað. Eins ef menn eru ekki komnir í lið þá er hugsanlega hægt að finna út úr því áður en leikur hefst osfrv.
Sem sagt, gott að fá þátttökutilkynningar og eins miklar upplýsingar eins og hægt er á netfangið leturval@litrof.is eða í síma 898 3795.

 Fimm bestu umferðirnar af átta telja.

Mótið verður með sama sniði og undanfarin ár. Leiknir eru 2 hringir á hverju kvöldi, eða 36 holur.

* Einstaklingskeppnin
Keppt verður um púttmeistara klúbbsins og skilar hver leikmaður 36 holu skori hvert kvöld.

* Liðakeppnin
Nú telja allir í 4 manna liði. Þó er ekkert sem útilokar þriggja manna lið. Ef hins vegar eru fleiri en fjórir í liði þarf að tilkynna hver telur ekki í liðakeppninni áður en leikur hefst en allir eru að sjálfsögðu með í einstaklingskeppninni. Liðið skilar svo inn einu skori sem samanstendur af bestu fjórum 18 holu hringjunum af sex eða átta fer etir fjölda í hverju liði.

Mótsgjaldið er kr. 5000, sem leikmenn greiða fyrsta kvöldið eða leggja inná reikn: 528-26-3371, kt.: 030150-7919 .

Þetta verður annars allt með sama hætti og í fyrra; lítill bjór verður seldur á 500 kall en boðið verður uppá kaffi.

Ef eitthvað er óljóst þá er bara að hringja í 898 3795 eða senda tölvupóst á netfangið hér að neðan.

Svo höfum við bara gaman af þessu öllu saman.

Kveðja
Halldór B. Kristjánsson
leturval@litrof.is