177 konur púttuðu í 1. umferð Ecco púttmótaraðar GR kvenna. Það er eitthvað við það þegar púttið byrjar að þá finnst manni farið að stytta í vorið. Heilt yfir gekk þetta vel en það var einhver púki í Dóra þegar hann setti upp völlinn og margar konur sem fóru í vegginn á 15. braut. Minnum á að ef boltinn fer í vegginn að þá er það út fyrir vallarmörk „out of bounds“ og taka skal víti þar sem síðasta högg var slegið.
Meðalskorið í 1. umferð var 32,1 á betri hring. Við munum fylgjast með meðalskorinu og vonandi sjáum við það lækka í hverri viku. Ecco er aðal styrktaraðili púttmótaraðarinnar í ár og veitir vegleg verðlaun fyrir 1. sæti í einstaklingskeppni og fyrir vinningsliðið. Full ástæða til að koma að æfa sig til að eiga kost á þessum glæsilegu verðlaunum. Minnum á að Korpan er opin til 22 á kvöldin og um helgar svo það er hægt að fara og æfa sig milli umferða.

Besta skor 1. umferðar var 27 högg sem er glæsilegt en það voru Linda Bergsveinsdóttir og Ragnheiður Víkingsdóttir sem báðar náðu því.
35 lið eru skráð í liðakeppnina, sami fjöldi og í fyrra. Fjarkinn stóð sig vel, skorið þeirra í liðakeppninni var 86 högg. Næsta lið á eftur eru Freyjur með 88 högg.
Heildarúrslit 1. umferðar má finna á FB síðu GR kvenna.
Áhugasamar konur geta enþá komið og tekið þátt, 4 skipti af 6 gilda.
Tölvupóstur kvennanefndar grkvennanefnd@gmail.com


