Þá er ECCO-púttmótaröðin hafin enn eitt árið og þátttakan samkvæmt venju góð.

Lið nr. 1 ætlar sér greinilega að vinna þetta einn ganginn enn og kom inná besta skori liða 108 pútt og að sem meira er að besta skor einstaklinga átti hinn geðþekki Jón Karlsson úr liði 1 og notaði aðeins 54 pútt.
Útfylling skorkorta var nokkuð góð svona heilt yfir en regla nr. 1 er að merkja nr. liðs á skorkortið og nöfn leikmanna eða skammstöfun skýrum stöfum.
Já, vel á minnst, einhver gleymdi gleraugunum sínum!

ATH! Í liðakeppninni telja fjórir eins og menn vita. Þau lið sem skipa 5 eða fleiri leikmönnum, og allir mæta til leiks, er skylda að láta umsjónarmann vita hverjir 4 leikmenn telja í það og það skiptið sem lið áður en leikur hefst. Eru menn ekki örugglega að skilja þetta? Ef ekki hafa samband við umsjónarmann. Allir eru að sjálfsögðu með í einstaklingskeppninni.
Stefnan er sú að úrslit eftir hverja umferð birtist á grgolf.is morguninn eftir hverja umferð nema núna þar sem upp komu allskyns nafnabreytingar og fleira sem tafði þetta aðeins.
Annars bara kátur.
Meðfylgjandi er staða liða og einstaklinga eftir 1. umferð.
Bestu kveðjur,
Halldór B. Kristjánsson
898 3795


