Eins og menn muna var lið nr. 1 best í fyrstu umferð en nú í þeirri annarri var liðið á hinum endanum, lið nr. 50 á besta skorinu, 109 pútt og Steinþór Jónasson í því liði lék best allra á 53 púttum, einpúttar 19 holur af 36 – frábært. Þrír leikmenn komu svo inná 54 púttum sem verður einnig að teljast nokkuð gott.
Annars gekk þetta bara nokkuð fljótt og vel fyrir sig og var umsjónarmaður kominn heim til sín kl. 21 sem er nýtt met.
Þeir sem hafa mætt en ekki enn greitt þátttökugjaldið vinsamlegast gerið það fyrir næstu umferð svo hægt sé að loka bókhaldinu. Hægt er að leggja inná: 528-26 3371, kt. 030150-7919.
Enn og aftur! Í liðakeppninni telja fjórir eins og menn vita. Þau lið sem skipa 5 eða fleiri leikmönnum, og allir mæta til leiks, er skylda að láta umsjónarmann vita hverjir 4 leikmenn telja í það og það skiptið sem lið áður en leikur hefst. Eru menn ekki örugglega að skilja þetta? Ef ekki hafa samband við umsjónarmann. Allir eru að sjálfsögðu með í einstaklingskeppninni.
Annars bara kátur.
Meðfylgjandi er staða liða og einstaklinga eftir 2. umferð.
Ecco púttmótaröð karla 2026
Bestu kveðjur,
Halldór B. Kristjánsson
898 3795
leturval@litrof.is


