Lið nr. 1 gefur ekkert eftir, það er ekki spurning, er nú með 5 pútta forystu eftir þrjár umferðir og Nonni Karls úr sama liði er efstur einstaklinga um þessar mundir en þetta er nú rétt að byrja eins og við vitum. Það sem meira er að lið eitt er eina liðið sem skartar liðsbúningum, ekki bara einum heldur þremur og nýjustu fregnir herma, óstaðfest þó, að liðið komi til að skarta fjórða búningnum innan tíðar.
Þrjú lið léku betur en önnur og komu inná 108 púttum sem er þrusugott þar sem sumir vildu meina að völlurinn væri í erfiðari kantinum, en hvenær er völlur erfiður og hvenær ekki?
Excel-skjalið sem hér fylgir með er ekki alveg fullkomið, sem hefur þó ekki áhrif á stöðu efstu manna og liða en unnið er að viðgerð.
Annars bara tiltölulega kátur.
Meðfylgjandi er staða liða og einstaklinga eftir 3. umferð
Bestu kveðjur,
Halldór B. Kristjánsson
898 3795

