Ég viðurkenni að völlurinn var erfiður og fékk alveg að heyra frá sumum keppendum en svo voru aðrir sem tóku ekkert eftir því samanber Hjalti Einarsson úr liði 42 er lék á 54 púttum sem var besta skor dagsins og svo komu margir aðrir á góðu skori en almennt var skorið hærra en oft áður.
Lið nr. 1 heldur sínu striki og er með afgerandi forystu og Jón Karlsson, úr sama liði, hefur spilað best allra enn sem komið er.
En þá er það stóra búningamálið! Umsjónarmaður óð í villu og svima í síðasta pistli sem berlega hefur komið í ljós. Pistillinn var varla kominn í loftið er umsjónarmaður fékk meðfylgjandi mynd senda án orða af liði 41 í þessum flottu treyjum og svo hefur það komið í ljós að hópurinn sem skipar liðin 26, 36 og 42 hefur einnig sinn fína liðsbúning. Það hefur sem sagt komið í ljós að áðurnefndur umsjónarmaður veit ekki neitt og biðst innilega afsökunar á þessu rugli sínu og lætur hér með lokið allri umræðu um búningamál.
Excel-skjalið sem hér fylgir með er komið úr viðgerð og vona ég að sú viðgerð sé varanleg.
Þrátt fyrir allt er ég bara tiltölulega kátur.
Meðfylgjandi er staða liða og einstaklinga eftir 4. umferð.
Bestu kveðjur,
Halldór B. Kristjánsson
898 3795
leturval@litrof.is

