Arnar Ottesen, í liði 30, stal heldur betur senunni er hann kom inná 48 púttum sem er fáheyrt sem gerði það að verkum að lið 30 lék best liða, 104 pútt. Við erum að tala um 24 holur af 36 á einu pútti. Það er ekki oft sem leikið er undir 50 púttum þó svo það hafi gerst nokkrum sinnum og er þá í fersku minni er Hannes Eyvindsson lék á 46 púttum og kom sínu liði undir 100 púttum sem ekki hefur aldrei gerst áður.
En nú er komið að tímamótum því í næstu umferð losna lið og einstaklingar við sinn versta hring og hjá sumum liðum getur það breytt stöðunni töluvert. Þannig að nú fer þetta að vera spennandi.
Það eru enn smá agnúar í Excel-skjalinu sem þarf að laga en hefur ekki áhrif á stöðu efstu manna og liða. Þetta á bara við þá sem hafa lítið mætt sýnist mér.
Þrátt fyrir allt er ég bara tiltölulega kátur.
Meðfylgjandi er staða liða og einstaklinga eftir 5. umferð.
Bestu kveðjur,
Halldór B. Kristjánsson
898 3795
leturval@litrof.is

