Nú er sú stund upprunnin að lið og einstaklingar henda út sínum versta hring og lið nr. 30, sem leikið hefur best tvær umferðir í röð, lækkaði sitt skor um 15 pútt sem dæmi og stökk upp í annað sætið. Leikar eiga bara eftir að æsast í síðustu tveimur umferðum sem eftir eru.
Jóhann Sigurðsson, lið 36, var bestur einstaklinga á 53 púttum einu pútti á undan mörgum öðrum.
Eins og staðan er núna heldur lið nr. 1 forystunni og Jón Karlsson er efstur einstaklinga.
Verðlaun
Eins og áður segir eru aðeins tvær umferðir eftir og er ég þessa dagana að keppast við að fylla verðlaunalistann og gengur þokkalega. Ég stefni á, eins og áður, að vera með verðlaun fyrir fyrstu 6 til 8 sætin í hvorum flokki fyrir sig. Þeir sem ekki ná verðlaunasæti verða bara að mæta á lokakvöldið því ég verð með 20 til 30 þokkalegan glaðning fyrir þá sem dregnir verða út. Dregið verður úr nöfnum þátttakenda sem verða á staðnum og eru ekki í verðlaunasætum. ATH! Bara svo því sé haldið til haga að við verðlaunaafhendingu liða geri ég bara ráð fyrir fjórum í hverju liði.
Nú þegar hafa tveir þátttakendur fært mér verðlaun fyrir lokakvöldið og ef einhverjir fleiri eru í slíkri aðstöðu væri það vel þegið. Þá fá bara fleiri einhvern glaðning. Ég er ekki að tala um að fá neitt endilega frítt en góður afsláttur væri vel þeginn. J
Lokaumferðin verður spiluð föstudaginn 13. mars
Látið mig endilega vita ef fyrirsjáanlegt er að þið komist ekki í lokapartýið um kvöldið. Það fækkar nöfnunum sem dregin eru út. Það er hundleiðinlegt að draga endalaust upp nöfn sem ekki eru á staðnum. Endilega hafið þetta í huga.
Það eru enn smá agnúar í Excel-skjalinu sem þarf að laga en hefur ekki áhrif á stöðu efstu manna og liða. Þetta á bara við þá sem hafa lítið mætt sýnist mér.
Þrátt fyrir allt er ég bara tiltölulega kátur.
Meðfylgjandi er staða liða og einstaklinga eftir 6. umferð.

Bestu kveðjur,
Halldór B. Kristjánsson
898 3795
leturval@litrof.is

