Frábær GR kvennaferð til Valle del Este – GOLFSKÓLI Í BOÐI

GR konur fara til Valle de Este 25. September með Icelandair Vita og PS Travel

  • Í boði er 7 daga og 11 daga ferð.
  • Verð fyrir 7 nætur frá 306.900 og 11 nætur 389,500 kr. Staðfestingargjald er 40.000 kr á mann
  • Allt innifalið nema drykkir – íslensk farastjórn

Hægt að greiða með Vildarpunktum og gjafabréfum hjá Icelandair.

Við viljum sérstaklega vekja athygli á að í ferðinni býðst einstakt tækifæri til að taka þátt í golfskóla með Sigurpáli Geir Sveinssyni, sem jafnframt er fararstjóri ferðarinnar.

Hvað felst í golfskólanum?

  • 6 dagar af kennslu
  • 2–3 klst. á dag á morgnana – frábær byrjun á deginum, svo er hægt að halda út á völl eftir hádegi.
  • Sérhæfð kennsla með áherslu á tækni, nálgun, spilskipulag og sjálfstraust

Golfskólinn kostar aukalega 45.000 kr á mann

Golfskólinn hentar bæði byrjendum og reynslumeiri kylfingum sem vilja efla grunninn sinn. Það hafa allir gott af kennslu annarslagið.

Til að bóka sig í ferðina setja inn hlekkinn

 https://www.icelandair.com/is-is/flug/hopabokun/stadfesta-og-greida/

Þá kemur upp síða þar sem beðið er um hópanúmer, notið: 1791

Til að bóka golfskólann þarf að hafa samband við Golfdeild VITA:
golf@vita.is
570‑4457