Framkvæmdir í Grafarholti – upplýsingar!

Framkvæmdir í Grafarholti

Uppbygging á nýrri flöt við 3. braut í Grafarholti er á lokametrunum og hafa framkvæmdir gengið vel. Nýja flötin, sem staðsett er hægra megin við þá núverandi flöt, var sáð 1. júlí 2025 og nær yfir um það bil 550 fermetra.

Áætlað er að nýja flötin verði tekin í notkun sumarið 2027 þegar hún hefur fengið nægan tíma til að festa rætur og ná æskilegum gæðum.  Þegar nýja flötin verður tekin í gagnið verður sú sem fyrir er afmáð og verður þá jafnframt unnt að taka í gagnið nýja teiga á 4. braut, sem eru svo að segja tilbúnir. Hér fyrir neðan má sjá nýteknar myndir úr lofti af 11. flöt.

Uppbygging á nýrri flöt á 11. braut er einnig langt komin, en sáð var í nýju flötina í vikunni sem nú er að líða.  Við áætlum að ný 11. braut verði einnig opnuð sumarið 2027.  

Tom McKenzie er hönnuður þessara breytinga.  Ellert Þórarinsson, yfirvallarstjóri, hefur haft yfirumsjón með framkvæmdum.  Vallarstjórar Grafarholtsvallar, Darren Lee Farley og Bjarni Grétar Sigurðsson, hafa einnig tekið virkan þátt, en auk þessara hafa fleiri komið að, sérstaklega ber að nefna Steindór Eiðsson á jarðýtunni.  Við þökkum þessu fólki fyrir vandaða vinnu og hlökkum mikið til að opna þessi nýju svæði á Grafarholtsvellinum.

Golfklúbbur Reykjavíkur