Framtíðarsýn og uppbygging barna-, unglinga- og afreksstarfs GR

Kæru GR-ingar,

Að undanförnu hefur verið unnið að breytingum á barna-, unglinga- og afreksstarfi klúbbsins. Rétt er því að staldra aðeins við, horfa yfir farinn veg og um leið upplýsa ykkur um þá framvindu sem átt hefur sér stað í starfinu.

Síðastliðið haust var Páll Birkir Reynisson ráðinn í nýtt starf rekstrarstjóra íþróttasviðs klúbbsins. Staðan á barna-, unglinga- og afreksstarfinu var metin og ákveðið að ráðast í umbætur á nokkrum sviðum.

Markmiðið er einfalt: að byggja upp barna-, unglinga- og afreksstarf í hæsta gæðaflokki og skapa heilbrigðan samastað fyrir öll börn og ungmenni í starfinu, óháð aldri og getu.
Ný hópaskipting
Út frá þessari sýn var ákveðið að endurskipuleggja hópaskiptingu starfsins og skilgreina hvern hóp upp á nýtt. Áður var starfið skipt í almennt starf, keppnishópa og meistaraflokk. Nú er skiptingin eftirfarandi:

Korpu-hópar (áður almenna starfið)
Allir kylfingar hefja sinn feril í Korpu-hópum. Þar læra börn og unglingar grunnatriði og grunngildi golfsins, ásamt þeim færniþáttum sem þarf til að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og komast út á golfvöll.

Grafarholts-hópar (nýr hópur)
Grafarholts-hópur er millistigshópur sem brúar bilið á milli Korpu-hópa og keppnishópa. Ef þjálfarateymið sér mikinn áhuga, vilja og keppnisanda hjá iðkanda getur hann fengið boð í Grafarholts-hóp. Sá hópur er ætlaður kylfingum sem sýna metnað og eru að stíga sín fyrstu skref í keppnisgolfi.

Keppnishópar
Keppnishópar eru ætlaðir þeim iðkendum sem eru komnir lengst í barna- og unglingastarfinu og hafa sýnt mikinn metnað. Þar er æfingaálag meira og gert er ráð fyrir virkri þátttöku í keppnisgolfi, bæði hérlendis og erlendis.

Meistaraflokkur
Meistaraflokkur GR samanstendur af bestu kylfingum klúbbins. Þar eru kylfingar sem eru á meðal bestu kylfinga landsins, þar með talið atvinnumenn GR.

*Taka skal skýrt fram að það er alltaf þjálfarateymi GR sem metur í hvaða hópi iðkandi skuli æfa, þar með talið tilfærslur milli flokka.

Með þessari hópaskiptingu er tryggt að hver iðkandi æfi með réttum hópi út frá getu, aldri og áhuga. Korpu-hópar taka við kylfingum á aldrinum 6–18 ára, en Grafarholts- og Keppnishópar geta tekið við kylfingum allt frá 11–12 ára aldri.

Eins og gengur tekur tíma fyrir slíkar breytingar að festast í sessi og fyrir hópaskiptinguna að endurspegla að fullu hlutverk hvers hóps. Engu að síður skapar þessi uppsetning betri forsendur fyrir þjálfara til að gefa hverjum og einum iðkanda meiri tíma, sem mun skila sér í aukinni ánægju og betri árangri með tímanum.

 

Ráðgjöf og þróun starfsins

Í lok síðasta árs var Jussi Pitkänen fenginn til liðs við klúbbinn sem ráðgjafi í þeirri uppbyggingu sem nú er í gangi í barna-, unglinga- og afreksstarfinu til næstu tveggja ára. Jussi er menntaður PGA-golfkennari og býr yfir áratuga reynslu af þjálfun og stjórnun afreksstarfs í golfi, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi.

Jussi er mörgum Íslendingum að góðu kunnur eftir störf sín sem afreksstjóri Golfsambands Íslands á árunum 2016–2018 og síðar sem landsliðsþjálfari hjá finnska golfsambandinu. Þá hefur hann einnig starfað fyrir bresku PGA-samtökin og Dave Pelz Golf Academy á Írlandi. Við teljum að sú víðtæka reynsla og sérþekking sem hann býr yfir muni nýtast GR afar vel og eru skipulagsbreytingar sem hér hefur verið gerð grein fyrir unnar í samráði við hann.

Jussi er búsettur á Spáni og verður það áfram. Hér er um ráðgjöf að ræða en ekki ráðningu í starf. Hlutverk hans hjá GR felur meðal annars í sér að koma að skipulagningu starfsins, móta íþrótta- og afreksstefnu, styðja við þjálfara og leikmenn, auk heimsókna til landsins. Markmiðið er að lyfta íþrótta- og afreksstarfi klúbbsins á næsta stig og þannig að það standist samanburð við það sem best gerist erlendis.

 

Þjálfarateymi og nýjungar

Samstarfið við Jussi hefur gengið vel. Meðal þess sem hann hefur komið með inn í starfið eru námskeið og fræðsla fyrir þjálfarateymi klúbbsins. Nú þegar hefur allt teymið tekið þátt í fyrirlestrum í gegnum fjarfundabúnað með David Silva og Kevin Kirk.

David Silva er tækniþjálfari finnska landsliðsins og hefur komið að þjálfun fjölda kylfinga frá Finnlandi og Eistlandi sem síðar hafa náð inn á DP World Tour. Kevin Kirk var valinn PGA of America Coach of the Year árið 2019 og er sérfræðingur í Long Term Athlete Development. Hann hefur einnig verið þjálfari Patrick Reed um árabil. Fleiri fyrirlestrar  eru fyrirhugaðir á næstunni undir handleiðslu Jussi.

Varðandi þjálfaramál hafa einnig orðið breytingar.  Í barna- og unglingastarfinu starfa nú David Barnwell, Hákon Örn, Páll Birkir, Þóra Sigríður,  Elvar Már og Sara ÁgústaBerglind Björnsdóttir er einnig í teyminu en hún er í fæðingarorlofi sem stendur.

Í byrjun árs bættist Snorri Páll einnig í þjálfarateymi keppnishópanna. Það er mikill styrkur fyrir unglingana, enda er Snorri einn færasti þjálfari landsins og mun hjálpa verulega til við tæknilega þætti í golfleik okkar bestu unglinga.

Einnig var í byrjun árs ráðinn nýr þjálfari fyrir meistaraflokka klúbbsins. Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson hefur tekið sér hlé frá keppnisgolfi og snúið sér að þjálfun. Með ráðningu Gumma fáum við inn þjálfara með ferska sýn og mikla reynslu. Hann hefur meðal annars keppt á Evrópumótaröðinni (DP World Tour) og þekkir því vel hvaða þætti þarf að hafa til að ná langt í golfi. Gummi kemur með nýjan vinkil inn í meistaraflokkinn, t.d. hvað varðar skipulag æfinga, leikskipulag úti á velli og áfram má telja.  Hann veit af reynslu hvað þarf til að ná hámarks árangri.  Spennandi tímar fram undan þar.

 

Fleiri breytingar og næstu skref

Vert er einnig að nefna að allir keppnishópar hafa í vetur verið í  styrktarþjálfun einu sinni í viku í CrossFit Reykjavík. Þjálfari er Alexander Pétur, menntaður sjúkraþjálfari, keppnismaður í lyftingum og fyrrverandi kylfingur. Æfingarnar hafa farið vel af stað og almenn ánægja ríkir meðal kylfinga.

Keppnishópum hefur jafnframt verið skipt upp í nýja aldursflokka. Þar sem áður var skipting í U14 og 15–18 ára, er nú skipt í U14, U16 og U18, í samræmi við það sem tíðkast í mótum hérlendis og erlendis.

Keppnishópar U16 og U18 hafa einnig hafið einkatíma hjá Snorra Páli. Þetta mun hjálpa kylfingunum að ná betri tökum á sinni tækni og gera æfingar utan skipulagðra æfinga markvissari.

Eins og sjá má hefur mikil vinna verið lögð í starfið síðustu mánuði og eiga þjálfarateymi, skrifstofa, Jussi og aðrir sem að starfinu koma mikið hrós skilið. Við erum þó hvergi nærri hætt, enda stefnan sett hátt og um að ræða vinnu til langs tíma.

Á komandi mánuðum verður aukin notkun tölfræði tekin upp hjá okkar bestu unglingum og í meistaraflokki. Tölfræði er mikilvæg til að greina golfleikinn betur og kafa dýpra í frammistöðu. Unnið er að afreksstefnu sem kynnt verður á næstu mánuðum, þar sem starfið verður útskýrt á faglegan hátt og framtíðarsýn klúbbsins í barna-, unglinga- og afreksstarfi sett skýrt fram. Þar verður meðal annars fjallað um stefnu varðandi háskólagolf og hvernig við undirbúum leikmenn sem best fyrir það skref.

Mikil uppbygging er í gangi og mikilvægt er að hafa í huga að slíkt ferli tekur tíma. Þjálfarar, starfsmenn og stjórn klúbbsins eru öll á sama báti með það markmið að byggja upp besta barna- og unglingastarf sem hægt er. Við erum að fara inn í nokkurra ára uppbyggingu sem verður spennandi að fylgjast með.

Við hugsum sérstaklega að grasrótinni og að búa til umhverfi fyrir krakka og unglinga til að kynnast íþróttinni og taka ástfóstri við hana. Góð tómstund gefur lífinu gildi, ekki eingöngu fyrir afrekskylfinga, heldur einnig hinn almenna kylfing á öllum aldri.  Við viljum hlúa að þessu umhverfi þannig að hver og einni geti iðkað íþróttina við sitt hæfi, á sínum forsendum.

Boðað verður til kynningarfundar á næstunni þar sem farið verður nánar yfir starfið, mótaskrá sumarsins, innanfélagsmótaröðina, æfingar sumarsins og fleira.