Þá er komið að febrúarbingó eldri kylfinga en það verður haldið næstkomandi föstudag, 21. febrúar. Það er hópur eldri kylfinga klúbbsins sem stendur fyrir mánaðarlegu bingói yfir vetrartímann, almennt er vel mætt á þennan viðburð og hvetur nefndin alla eldri kylfinga til að mæta og gera sér glaðan dag. Flottir vinningar eru í boði og því vel þess virði að mæta – pútta, fá sér kaffi í góðum félagsskap og taka þátt í bingóleik.
Dagskráin er þessi:
Kl. 10:00 – Pútt
Kl. 10:30 – Kaffi og spjall
Kl. 11:00 – Bingó hefst
Allir eldri kylfingar klúbbsins eru hvattir til að mæta og taka þátt í þessum frábæra félagsskap.
Bingónefndin hlakkar til að sjá sem flesta mæta á Korpuna á föstudag!
Golfklúbbur Reykjavíkur