Miðvikudaginn 3. nóvember verður bingó fyrir eldri kylfinga 60+ haldið. Bingóið er liður í vetrarstarfi sem eldri kylfingar klúbbsins standa fyrir og hefst morguninn á því að pútta saman á efri hæð Korpunnar. Að pútti loknu sameinast hópurinn í í kaffi á neðri hæðinni og tekur þátt í bingó. Karl Jóhannsson fer fremstur í flokki fyrir hópinn og stýrir ferðinni, alltaf eru flottir vinningar í boði og almennt vel mætt á þennan mánaðarlega viðburð.
Dagskrá miðvikudagsins verður þessi:
Kl. 10:00 – Pútt
Kl. 10:30 – Kaffi
Kl. 11:00 – Bingó
Allir félagsmenn klúbbsins sem náð hafa 60 ára aldri eru hvattir til að mæta og taka þátt í þessum frábæra félagsskap.
Bingónefndin hlakkar til að sjá sem flesta á nóvember bingó.
Gjald er kr. 500.
Golfklúbbur Reykjavíkur