Golfbox, nýtt tölvukerfi Golfsambandsins er nú komið í notkun og hafa fjölmargir íslenskir kylfingar þegar skráð sig inn í kerfið. Við hvetjum þá félagsmenn sem ekki hafa stofnað sér aðgang að fylgja leiðbeiningum hér fyrir neðan við stofnun aðgangs.
Hvernig stofna ég aðgang inn á GolfBox?
- Ferð inn á golf.is
- Smellir á Nýskráning efst í hægra horninu.
- Þá opnast vefsíða GolfBox
- Slærð inn kennitölu og eftirnafn þitt eins og það er skrifað með íslenskum stöfum.
- Smellir á Leita.
- Ef þú ert skráð(ur) sem virk(ur) félagi í golfklúbbi í kerfinu ertu látin(n) staðfesta að þetta sért þú og flyst þá yfir á Forsíðuna þína í GolfBox.
- Ef upplýsingar um þig birtast ekki við leit hefurðu samband við klúbbinn þinn.
Hvernig breyti ég notandanafni, lykilorði og netfangi?
- Þú ferð í Forsíðan mín ofarlega vinstra megin á síðunni.
- Smellir á Breyta prófílnum.
- Neðarlega á síðunni smellir á Breyta notandanafni og aðgangsorði >.
- Slærð inn nýtt notandanafn og lykilorð.
- Slærð inn farsímanúmer og netfang.
- Smellir á Uppfæra >
Smelltu hér til að skoða hjálparmyndband við nýskráningu https://youtu.be/sjwTsNUMFVo