Þó að haustlægðirnar séu farnar að herja á er ekki ástæða til að hvíla sveifluna, hvað þá æfa tæknina. Arnar Snær, PGA golfkennari, býður upp á þrjú námskeið í október, fyrir byrjendur og almennt námskeið.
Upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Byrjendanámskeið - Besta leiðin til að byrja í sportinu
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur - Smá upprifjun og framhald fyrir þá sem hafa tekið byrjendanámskeið
Almennt námskeið - Fínpússun fyrir lengri komna
Byrjendanámskeið
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Farið verður vel yfir alla grunnþætti í golfinu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:00-18:00 á mánudögum og miðvikudögum og laugardögum klukkan 10:00-11:00. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 10.október í Básum, Grafarholti.
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
Skemmtilegt námskeið fyrir kylfinga sem eru komnir aðeins áfram í sportinu og vilja taka næsta skrefið í sínum leik. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á mánudögum og miðvikudögum og laugardögum klukkan 12:00-13:00. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 10.október í Básum, Grafarholti.
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Fínpússun fyrir alla (Almennt námskeið)
Tilvalið námskeið fyrir alla kylfinga sem eru komnir með forgjöf og vilja smá yfirferð á miðju sumri. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og miðvikudögum og laugardögum kl 11:00 - 12:00. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 10.október í Básum, Grafarholti.
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is