Golfnámskeið í september

Golfnámskeið í september

Ný skemmtileg námskeið fyrir alla í september, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er tilvalið að skella sér á golfnámskeið í september til að halda sér í æfingu og læra spila enn betra golf! Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ PGA kennara í september.

Algjör byrjandi 1 og 2 – Besta leiðin til að byrja í golfi
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur – Næsta skrefið fyrir byrjendur
Kvennanámskeið – Vinsælustu námskeiðin í dag
Almennt námskeið – Fyrir þá sem eru komnir aðeins lengra

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is

Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:

Algjör byrjandi – 1
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er kennt á virkum dögum frá klukkan 17:30-18:30 og á laugardögum klukkan 10:00-11:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 4.sept í Básum, Grafarholti

4.sept: – Grunnatriði/Sveifla
6.sept: – Kraftur
9.sept: – Grunnatriði/Pútt/Vipp
11.sept: – Golfsveiflan
13.sept: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Algjör byrjandi – 2
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er kennt á virkum dögum frá klukkan 17:30-18:30 og á laugardögum klukkan 11:00-12:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið þriðjudaginn 5.sept í Básum, Grafarholti

5.sept: – Grunnatriði/Sveifla
7.sept: – Kraftur
9.sept: – Grunnatriði/Pútt/Vipp
12.sept: – Golfsveiflan
14.sept: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
Gott námskeið fyrir þá sem vilja ná betri tökum á golfleiknum og fá meira öryggi og þekkinguna á leiknum Námskeiðið er kennt á virkum dögum frá klukkan 18:30-19:30 og á laugardögum klukkan 12:00-13:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið námskeiðið mánudaginn 4.sept í Básum, Grafarholti

4.sept: – Sveifla/Boltaflug
6.sept: – Power/Lengd
9.sept: – Pútt/Vipp æfing
11.sept: – Teighögg
13.sept: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Kvennanámskeið
Skemmtilegt námskeið sérhannað fyrir kvenkylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem áhersla verður lögð á að bæta slátt og lengri teighögg. Námskeiðið er kennt á virkum dögum frá klukkan 18:30-19:30 og á laugardögum klukkan 13:00-14:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið þriðjudaginn 5.sept í Básum, Grafarholti

5.sept: – Sveiflan/tækni
7.sept: – Kraftur
9.sept: – Grunnatriði/Pútt/Vipp
12.sept: – Lengri teigögg
14.sept: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Almennt námskeið
Skemmtilegt námskeið fyrir kylfinga sem eru komnir aðeins áfram í sportinu og vilja smá yfirhalningu þar sem áhersla verður lögð á að bæta slátt teighögg og pútt. Námskeiðið er kennt á virkum dögum frá klukkan 19:30-20:30 og á laugardögum klukkan 09:00-10:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið þriðjudaginn 5.sept í Básum, Grafarholti

5.sept: – Sveifla/Uppstilling/Kylfuval
7.sept: – Kraftur
9.sept: – Pútt/Vipp æfingar
12.sept: – Lengri högg/Teighögg
14.sept: – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Til baka í yfirlit