Vorið er komið og tíminn til að æfa er núna! Er ekki tilvalið þá að skella sér á golfnámskeið í apríl og byrja sumarið vel. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ og Golfklúbbi Reykjavíkur í apríl.
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is - Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan.
Byrjendanámskeið – Besta leiðin til að byrja í golfi
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur – Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur og þá sem eru að snúa sér aftur að golfi og vilja fá góða upprifjun
Burt með slæsið! – Námskeið þar sem aðal áherslan verður lögð á að lagfæra slæs með öllum kylfum
Yfirferð fyrir lengri komna – Fyrir þá sem vilja yfirferð á öllum leiknum sínum fyrir sumarið
Byrjendanámskeið 2
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er tíu skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:00-18:00 á þriðjudögum og fimmtudögum og klukkan 13:00-14:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 2.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
2. apríl: Básar – Grip
4. apríl: Básar – Grip/Staða
6. apríl: Korpa – Stuttaspil
9. apríl: Básar – Trékylfur
11. apríl: Básar – Upprifjun og fínpúss
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið
Námskeið fyrir golfara sem eru að byrja aftur og vilja góða upprifjun. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á mánudögum og miðvikudögum og klukkan 10:00-11:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 1.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
1. apríl: Básar – Grip
3. apríl: Básar – Grip/Staða
6. apríl: Korpa – Stuttaspil
8. apríl: Básar – Trékylfur
10. apríl: Básar – Upprifjun og fínpúss
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Burt með slæsið!
Námskeið fyrir kylfinga sem vilja ná betri tökum á sveiflunni þar sem öll áherslan er að laga slæsið. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og miðvikudögum og kl 12:00-13:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 1.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
1. apríl: Básar
3. apríl: Básar
6. apríl: Korpa
8. apríl: Básar
10. apríl: Básar
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Yfirferð fyrir lengra komna
Upplagt námskeið fyrir þá kylfinga sem ætla að fara með leikinn sinn á næsta plan í sumar. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og 21:00-22:00 á miðvikudögum og kl 10:00-11:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 1.apríl og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:
1 apríl: Básar – Járnahögg
3 apríl: Básar – Teighögg
6 apríl: Korpa – Pútt & Vipp
8 apríl: Básar – Blendingar/trékylfur
10 apríl: Básar – Pitch/Stutthögg
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)