Skrifað hefur verið undir vinavallasamning við Golfklúbb Hellu (GHR) fyrir golftímabilið 2017, samingurinn mun gilda frá 1. maí til 30. september og verður vallargjaldið kr. 2.100.
Samstarf klúbbana nær alla leið til ársins 2002 og er því sönn ánægja að halda því áfram á komandi sumri, fimmtánda árið í röð. Félagsmenn GR hafa verið duglegir að heimsækja Strandavöll, hjá klúbbnum er að finna allt það sem góðum klúbbi sæmir og kylfingur þarf – æfingasvæði og púttflöt auk glæsilegs klúbbhúss sem býður upp á fyrsta flokks veitingar að leik loknum.
Sömu reglur gilda á Strandavelli og um aðra vinavelli, félagsmenn GR greiða kr. 2.100 fyrir leik á vellinum sama hvort leiknar eru 9 eða 18 holur. Áður en leikur hefst skulu félagar framvísa félagsskírteini í afgreiðslu og ganga frá greiðslu vallargjalds. Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum sem gert hafa sérstaka samninga um afslætti, sbr. fyrirtækjamót.
Svo vonum við bara að það hætti að snjóa!
Golfklúbbur Reykjavíkur