Titleist Unglingaeinvígið var leikið á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar síðastliðinn föstudag, 17. september. Titleist Unglingaeinvígið er boðsmót þar sem leikmenn vinna sér inn þátttökurétt með góðum árangri á Unglingamótaröð GSÍ auk þess sem klúbbmeisturum GM er boðin þátttaka. Hjalti Kristján Hjaltason úr Golfklúbbi Reykjavíkur stóð uppi sem sigurvegari í mótinu.
Leikin var forkeppni í hverjum aldursflokki með „shootout“ fyrirkomulagi þar sem sá kylfingur með hæsta skorið féll úr keppni. Forkeppnin var spennandi og voru það þrír keppendur sem komust áfram úr hverjum flokki í lokaeinvígið.
Eftirfarandi kylfingar hófu keppni í úrslitum:
- Björn Viktor Viktorsson
- Aron Ingi Hákonarson
- Böðvar Bragi Pálsson
- Bjarni Þór Lúðvíksson
- Skúli Gunnar Ágústsson
- Hjalti Kristján Hjaltason
- Markús Marelsson
- Arnar Daði Svavarsson
- Perla Sól Sigurbrandsdóttir
- Sara Kristinsdóttir
Keppni var afar jöfn og spennandi og urðu úrslitin þess:
- sæti – Hjalti Kristján Hjaltason
- sæti – Aron Ingi Hákonarson
- sæti – Markús Marelsson
- sæti – Sara Kristinsdóttir
- sæti – Arnar Daði Svavarsson
- sæti – Skúli Gunnar Ágústsson
- sæti – Bjarni Þór Lúðvíksson
- sæti – Perla Sól Sigurbrandsdóttir
- sæti – Björn Viktor Viktorsson
- sæti – Böðvar Bragi Pálsson
Við óskum Hjalta Kristjáni innilega til hamingju með sigurinn!
Golfklúbbur Reykjavíkur