Hjóna- og parakeppni GR 2018

Hjóna- og parakeppni GR 2018

Hjóna og parakeppni Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldin í Grafarholti sunnudaginn 17. júní. Mótið er innanfélagsmót. Keppnisfyrirkomulag mótsins er Greensome þar sem tvö leika saman í liði. Til að mynda liðsforgjöf fær liðið 40% af leikforgjöf hærri leikmans og 60% af lægri leikforgjöf. Hámarksforgjöf karla er 24 og hjá konum 28. Veitt eru verðlaun fyrir 3 efstu sætin og nándarverðlaun eru veitt á öllum par 3 holum vallarins.

Ræst er út samtímis af öllum teigum kl. 8:00, mæting kl. 7:00. Rástímar á www.golf.is eru einungis til að raða í holl. Mikilvægt er að þau sem ætla að spila saman í liði séu skráð hlið við hlið í rástíma á www.golf.is

Skráning í mótið hefst þriðjudaginn 12. júní kl.10:00 á www.golf.is - Mótsgjald er 4.400 kr. á mann og greiðist við mætingu. 

Verðlaun:
1. sæti =  Golfskór frá ECCO fyrir tvo
2. sæti =  Golfpoki frá ECCO fyrir tvo
3. sæti =  ECCO regnhlíf og skópoki

Nándarverðlaun:
2. braut: Ostakarfa frá Mjólkursamsölunni 
6. braut: Ostakarfa frá Mjólkursamsölunni 
11. braut: Ostakarfa frá Mjólkursamsölunni 
17. braut: Ostakarfa frá Mjólkursamsölunni

Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar að móti loknu:
Grillað lambalæri
Bernaisesósa og villisveppasósa
Gratineraðar kartöflur, kartöflubátar, grillaður maís, sesarsalat og blandað grænmeti.

Golfklúbbur Reykjvíkur

Til baka í yfirlit