Hjóna- og parakeppni Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldin í Grafarholti miðvikudaginn 17. júní. Mótið er innanfélagsmót. Keppnisfyrirkomulag mótsins er Greensome þar sem tvö leika saman í liði. Til að mynda liðsforgjöf fær liðið 40% af leikforgjöf hærri leikmans og 60% af lægri leikforgjöf. Hámarksforgjöf karla er 24 og hjá konum 28. Veitt eru verðlaun fyrir 3 efstu sætin og nándarverðlaun eru veitt á öllum par 3 holum vallarins.
Ræst er út samtímis af öllum teigum kl. 08:00, mæting kl. 07:00.
Skráning í mótið hefst miðvikudaginn 10. júní kl.12:00.
Leiðbeiningar um skráningu:
Skráning í mótið fer fram í rástímaskráningu í Golfbox og er eingöngu hægt að bóka tvo leikmenn (eitt lið) í hvert holl. Valinn er völlurinn „GR – Hjóna- og parakeppni 2020“ á dagsetningu mótsins 17.06.2020. ATH! Rástímarnir birtast á 5 mínútna fresti og eru tveir skráðir saman í lið. Keppnisskilmálar og staðarreglur í mótinu eru sendar rafrænt degi fyrir mót. Rástímar í Golfbox eru einungis til að raða í holl. Mikilvægt er að þau sem ætla að spila saman í liði séu skráð saman.
Mótsgjald er kr. 4.900 á mann og greiðist í golfverslun þegar mætt er til leiks. Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar að móti loknu og verðru boðið upp á:
- Snittur í forrétt - roast beef, rækja og lax
- Nautapiparsteik með koníakspiparsósu, kartöflugratín og grænmeti í aðalrétt
- Súkkulaðimús með hindberjum og léttþeyttum rjóma í eftirrétt
Verðlaun í Hjóna- og parakeppni GR 2020 verða þessi:
1. sæti = Golfskór frá ECCO fyrir tvo
2. sæti = Ferðagolfpoki frá ECCO fyrir tvo
3. sæti = ECCO regnhlíf og skópoki fyrir tvo
Nándarverðlaun:
2. braut: Gjafabréf fyrir tvo hjá Holtið klúbbhús
6. braut: Gjafabréf fyrir tvo hjá Korpa klúbbhús
11. braut: Gjafabréf fyrir tvo hjá Holtið klúbbhús
17. braut: Gjafabréf fyrir tvo hjá Korpa klúbbhús
Golfklúbbur Reykjavíkur