Innanfélagsmót 70 ára og eldri – þriðja umferð leikin þriðjudag 24. ágúst

Innanfélagsmót 70 ára og eldri – þriðja umferð leikin þriðjudag 24. ágúst

Ný dagsetning er komin á þriðju umferð í Innanfélagsmóti 70 ára og eldri sem leika átti þann 18. ágúst. Umferðin verður leikin þriðjudaginn 24. ágúst og hefur verið opnað fyrir skráningu. Þetta er þriðja umferð af fjórum og eru leiknar 9 holur á Ánni. Ræst er út frá kl. 09:00-11:30. Keppt er í Stableford punktakeppni og leika allir keppendur af rauðum teigum.

Punktahæsti kylfingurinn í karla- og kvennaflokki verður útnefndur sigurvegari fyrir mótaröðina. Auk þess eru verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni karla og kvenna fyrir hvert mót ásamt verðlaunum fyrir besta skor í karla- og kvennaflokki. Nándarverðlaun verða veitt þeim sem er næst/ur holu á 13. og 17. Braut. Athugið að sami keppandi getur ekki unnið til verðlauna fyrir höggleik og punktakeppni.

Opnað hefur verið fyrir skráningu í mótið og fer hún fram í mótaskrá á Golfbox og í golfbúðinni á Korpu. Kylfingar greiða mótsgjald, kr. 1.000 hjá mótsstjóra eða gjaldkera þegar mætt er til leiks.

Skráningarhlekkur hér

Verðlaunaafhending fyrir hvern leikdag fer fram í lok dags og verða vinningshafar að vera viðstaddir afhendingu verðlauna. 

Mótsstjóri er Karl Jóhannsson.

Hvetjum alla 70 ára og eldri kylfinga klúbbsins til að skrá sig til leiks!
Golfklúbbur Reykjavíkur

 

Til baka í yfirlit