Fyrsta bingó eldri kylfinga klúbbsins á árinu 2020 verður haldið á morgun, föstudaginn 17. janúar. Það er hópur eldri kylfinga klúbbsins sem stendur fyrir mánaðarlegu bingói yfir vetrartímann og er almennt vel mætt á þennan viðburð. Flottir vinningar eru í boði og því vel þess virði að mæta og gera sér glaðan dag.
Dagskráin verður þessi:
Kl. 10:30 – Kaffi og spjall
Kl. 11:00 – Bingó hefst
Allir eldri kylfingar klúbbsins eru hvattir til að mæta og taka þátt í þessum frábæra félagsskap
Bingónefndin hlakkar til að sjá sem flesta mæta á Korpuna á morgun!
Golfklúbbur Reykjavíkur