Jóga fyrir golfara - námskeið á nýju ári

Jóga fyrir golfara - námskeið á nýju ári

Fyrstu námskeið í jóga fyrir golfara á komandi ári fyrir félaga Golfklúbbs Reykjavíkur hefjast 8. janúar 2019. Námskeiðin verða kennd i Hot Yoga salnum World Class í Smáralind á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17:45-18:45. Einnig verða námskeið í Hreyfingu þriðjudaga og fimmtudaga kl 20:00-21:00. Þetta eru sex vikna námskeið og skráning hafin World Class og Hreyfingu

Til þess að ná árangri i golfinu þurfum við að gera ýmsar æfingar til að styrkja líkamann, auka sveigjanleika og jafnvægi. Þannig fáum við  lengra sveifluferli, kraftmeiri högg og umfram allt aukum við einbeitingu og úthald, minnkum líkur á meiðslum og komumst i betra form fyrir sumarið. Mikilvægasta verkfærið i golfi er líkaminn. VIð náum ekki jafn góðum árangri ef líkaminn er ekki sterkur, stöðugur og sveigjanlegur.

Æfingarnar eru til þess fallnar að auka vöðvajafnvægi sem skila sér í betri sveiflu og bæta líkamlega þætti sem auka líkur á betri frammistöðu á vellinum. Miklu máli skiptir að auka líkamsvitund og hreyfifærni líkamans. Ég legg áherslu á styrk, stöðugleika, snúninga og öndun sem hjálpar til að ná einbeitingu og bæta úthald. þegar fólk nær að tengja öndunina inn í æfingarnar áttar það sig á því að það opnar og lengir líkamann á innöndun og getur snúið sér. Ég legg áherslu á að því að fólki líði vel í lok hvers tíma.

Jóga fyrir golfara á facebook

Með kveðju,
Birgitta Guðmundsdóttir
Jógakennari

 

Til baka í yfirlit