Meistaramót GR 2021 hefst á sunnudag og hafa rástímar sunnudagsins nú verið birtir í mótaskrá á Golfbox, ræst verður út frá kl. 08:00 á báðum völlum, Grafarholtsvelli og Korpúlfsstaðavelli.
Á Korpunni hefja allir barna- og unglingaflokkar leik ásamt 3.fl. karla og kvenna, 4.fl. kvenna og 5.fl. karla. Rástíma fyrir þessa flokka er að finna undir „Meistaramót GR 2021 – 3 dagar Korpa-Holtið-Holtið“
Í Grafarholti hefja leik 4.fl. karla og 70+ karlar og konur, 50 ára og eldri forgjafarflokkar 10,5-20,4 og 20,5-54 í 50+ karla og forgjafarflokkar 16,5-26,4 og 26,5-54 í 50+ kvenna. Rástíma fyrir þessa flokka er að finna undir „Meistaramót GR 2021 – 3 dagar Holtið-Korpa-Korpa“
Upplýsingar um skor og stöðu í mótinu verður hægt að sjá inni í mótinu á Golfbox.
Í meistaramótsviku munu klúbbhús félagsins opna hálftíma fyrir fyrsta rástíma.
Golfæfingasvæði Bása verður opið frá kl. 06-22 sunnudag til föstudags.
Allar helstu upplýsingar er hægt að finna hér á vefnum undir Félagsstarf - Meistaramót
Góða skemmtun og gangi ykkur vel!
Golfklúbbur Reykjavíkur