Meistaramót GR 2019 hefst á sunnudag og hafa rástímar sunnudagsins nú verið birtir á golf.is, ræst verður út frá kl. 08:00 á báðum völlum, Grafarholtsvelli og Korpúlfsstaðarvelli.
Í Grafarholti hefja leik 3.fl. karla, 4.fl. karla og 5.fl. karla, 3.fl. kvenna, 4.fl. kvenna og 70+ karlar og konur. Rástíma fyrir þessa flokka er að finna undir „Meistaramót GR 2019 – 3 dagar Holtið-Korpa-Korpa“
Á Korpunni hefja leik allir barna- og unglingaflokkar, forgjafarflokkar 10,5-20,4 og 20,5-54 í 50+ karla og forgjafarflokkar 16,5-26,4 og 26,5-54 í 50+ kvenna. Rástíma fyrir þessa flokka er að finna undir „Meistaramót GR 2019 – 3 dagar Korpa-Holtið-Holtið“
Upplýsingar um rástíma og stöðu í mótinu er að finna undir rástímar og núverandi staða. Passa þarf að velja réttan dag og hring þegar rástímar eru skoðaðir.
Gangi ykkur vel,
Golfklúbbur Reykjavíkur