Meistaramótsviku lauk í gær með glæsilegu lokahófi á 2. hæð Korpunnar, mótið fór vel fram og voru keppendur tæplega sex hundruð. Bongóblíða lék við keppendur í þriggja daga keppni en á miðvikudag breyttust bæði áttir og hitastig á keppendur í fjögurra daga keppni. Metfjöldi þátttakenda skráði sig til leiks í meistaraflokk karla og kvenna og var samkeppnin þar af leiðandi mikil. Það voru þau Ragnhildur Kristinsdóttir og Böðvar Bragi Pálsson sem urðu sigurvegarar móstsins en þau luku bæði leik á samtals -10. Við óskum nýjum klúbbmeisturum innilega til hamingju með titilinn.
Öll úrslit úr mótinu og stöðu má finna í mótaskrá á Golfbox en helstu úrslit flokkana urðu þessi:
70 ára og eldri konur
- Kristín Dagný Magnúsdóttir, 283
- Anna Laxdal Agnarsdóttir, 311
- Margrét S. Nielsen, 316
70 ára og eldri karlar
- Bjarni Jónsson, 231
- Friðgeir Óli Sverrir Guðnason, 238
- Viktor Ingi Sturlaugsson, 239
50 ára+ konur fgj.26,5-54
- Þorbjörg Ásgeirsdóttir 312
- Lilja Viðarsdóttir 324
- Sólveig Jóhanna Haraldsdóttir 325
50 ára+ karlar fgj.20,5-54
- Sveinbjörn Örn Arnarson, 298
- Jón Jónsson, 311
- Sigurður Haukur Magnússon, 316
50 ára+ konur fgj,16,5-26,4
- Rebecca Oqueton Yongco, 279
- Hafdís Hafsteinsdóttir, 284
- Sólveig Guðrún Pétursdóttir, 285
50 ára+ konur fgj,0-16,4
- Ásgerður Sverrisdóttir, 319
- Lára Eymundsdóttir, 341
- Auður Jóhannsdóttir, 342
50 ára+ karlar fgj.10,5-20,4
- Karl Emil Wernersson, 251
- Stefán Þór Steinsen, 252 - vann í bráðabana
- Gunnar Þorsteinsson, 252
50 ára+ karlar fgj.0-10,4
- Sigurjón Arnarsson, 289 - vann í bráðabana
- Helgi Anton Eiríksson, 289
- Frans Páll Sigurðsson, 299
5.flokkur karla
- Guðmundur Þorgrímsson, 307
- Hafsteinn Sigurjónsson,314
- Sigurjón Gylfason, 318
4.flokkur kvenna
- Helga Tryggvadóttir, 324
- Elsa Kristín Elísdóttir, 327
- Dóra Eyland Garðarsdóttir, 342
4.flokkur karla
- Pétur G Thorsteinsson, 264
- Ricardo Mario Villalobos, 268
- Egill Tryggvason, 276 - vann í bráðabana
3.flokkur kvenna
- Guðný Ásta Snorradóttir, 308
- Ásta B. Haukdal Styrmisdóttir, 312
- Kristín Jóhanna Hirst, 313
3.flokkur karla
- Sigurður Þór Sveinsson, 262
- Steinar Karl Hlífarsson, 266
- Hörður Grétar Olavsson, 267 - vann í bráðabana
2.flokkur kvenna
- Margrét Þorvaldsdóttir, 363
- Hjördís Jóna Kjartandsdóttir, 369
- Björk Unnarsdóttir, 370
2.flokkur karla
- Arnar Már Hafþórsson, 326
- Stefán Aðalbjörnsson, 330 - vann í bráðabana
- Egill Gautur Steingrímsson, 330
1.flokkur kvenna
- Ásta Óskarsdóttir, 318
- Harpa Ægisdóttir, 334
- Signý Marta Böðvarsdóttir, 341
1.flokkur karla
- Óttar Helgi Einarsson, 302
- Kjartan Tómas Guðjónsson, 307
- Jón Bergþórsson, 308
Meistaraflokkur kvenna
- Ragnhildur Kristinsdóttir, 276
- Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, 283
- Eva Karen Björnsdóttir, 290
Meistaraflokkur karla
- Böðvar Bragi Pálsson, 276
- Andri Þór Björnsson, 278
- Jóhannes Guðmundsson, 279
Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar öllum félagsmönnum fyrir þátttökuna í Meistaramóti GR 2020 og vinningshöfum til hamingju með sinn árangur!