Næsta bingó 60 ára og eldri verður haldið á Korpunni miðvikudaginn 30. mars. Að venju hefst morguninn á því að pútta saman á efri hæð Korpunnar. Að pútti loknu sameinast hópurinn í í kaffi á neðri hæðinni og tekur þátt í bingó.
Glæsilegir vinningar verða í boði og mun Karl Jóhannsson stýra ferðinni en ásamt honum hafa þeir Kristján, Axel, Björn og Jónas umsjón með bingó viðburðum. Það er ávallt vel mætt á þennan viðburð sem er orðinn fastur liður í starfi eldri kylfinga klúbbsins og eru allir félagsmenn sem náð hafa 60 ára aldri hvattir til að mæta.
Mæting er kl. 09:45 og er dagskrá miðvikudagsins þessi:
Kl. 10:00 – Pútt
Kl. 10:30 – Kaffi
Kl. 11:00 – Bingó
Í lokin er dregið úr bingóspjöldum og geta því allir átt von á vinning!
Bingónefndin hlakkar til að sjá sem flesta mæta á bingó í næstu viku.
Golfklúbbur Reykjavíkur