Opna Air Iceland Connect mótið verður haldið á Korpúlfsstaðarvelli sunnudaginn 11. júní. Ræst er út af öllum teigum samtímis kl.9:00. Mæting kl.8:00, í boði verður léttur morgunmatur fyrir keppendur.
Sá hluti Korpúlfsstaðarvallar sem leikinn verður er Sjórinn/Áin. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Leikið er í tveimur flokkum. Flokki 0–8,4 og 8,5 og hærra. Hámarksforgjöf karla er gefin 24 og 28 hjá konum. Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin í hvorum flokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor. Að auki verða veitt nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarsins.
Skráning í mótið hefst þriðjudaginn 6. júní kl.12:00, á www.golf.is, ganga þarf frá greiðslu við skráningu. Skráningu lýkur laugardaginn 10. júní kl.16:00.
Verðlaun:
Flokkur 0 – 8,4
Evrópuferð með Icelandair fyrir tvo
Flug til Aberdeen fyrir tvo
Inneignarbréf að upphæð kr. 40.000 hjá Air Iceland Connect
Flokkur 8,5 – hærra
Evrópuferð með Icelandair fyrir tvo
Flug til Belfast fyrir tvo
Inneignarbréf að upphæð kr. 40.000 hjá Air Iceland Connect
Besta skor – Inneignarbréf að upphæð kr. 80.000 hjá Air Iceland Connect og fjórir golfhringir á völlum Golfklúbbs Reykjavíkur.
Nándarverðlaun
3. braut – Inneign að upphæð kr. 25.000 hjá Air Iceland Connect
6. braut – Inneign að upphæð kr. 25.000 hjá Air Iceland Connect
9. braut – Inneign að upphæð kr. 25.000 hjá Air Iceland Connect
13. braut – Inneign að upphæð kr. 25.000 hjá Air Iceland Connect
17. braut – Inneign að upphæð kr. 25.000 hjá Air Iceland Connect
Að loknu móti verður verðlaunaafhending og léttar veitingar í boði Air Iceland Connect. Dregið verður úr skorkortum samhliða verðlaunaafhendingu.
Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Air Iceland Connect.