Opna FootJoy 2021 verður haldið á Grafarholtsvelli mánudaginn 2. ágúst. Ræst verður út frá kl. 08:00. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og höggleikur. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og 3 efstu sætin í höggleik. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 brautum vallarins. Einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 3. braut.
Skráning í mótið hefst í mótaskrá á Golfbox kl. 14:00 föstudaginn 23. júlí - Mótsgjald er kr. 5.600 og greiðist við skráningu.
Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir þrjá efstu í punktakeppni karla og kvenna auk verðlauna fyrir besta skor í karla- og kvennaflokki.
Punktakeppni karla:
1.sæti: FJ HLV2 regnjakki og regnbuxur
2.sæti: FJ Pro SL golfskór og golfsokkar
3.sæti: FJ golfpeysa og golfbolur
Punktakeppni kvenna:
1.sæti: FJ HLV2 regnjakki og regnbuxur
2.sæti: FJ Pro SL golfskór og golfsokkar
3.sæti: FJ golfpeysa og golfbolur
Besta skor karla: FJ HLV2 regnjakki og regnbuxur
Besta skor kvenna: FJ HLV2 regnjakki og regnbuxur
Nándarverðlaun:
2.braut: FJ Pro SL golfskór
6.braut: FJ Pro SL golfskór
11.braut: FJ Pro SL golfskór
17.braut: FJ Pro SL golfskór
Lengsta teighögg á 3. braut:
Gjafabréf fyrir fjóra á velli Golfklúbbs Reykjavíkur og Platínukort í Bása
Teiggjöf
Allir keppendur fá afhenta teiggjöf áður en leikur hefst.
Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur - Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Harpa Ægisdóttir og er með netfangið harpa@grgolf.is
Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við ÍSAM GOLF - FootJoy