Opna GR / Klaki 2019 var leikið á Grafarholtsvelli um helgina og fór keppni að mestu vel fram. Leikin var tveggja manna betri bolti, punktakeppni og lauk besta liðið leik á 96 höggum en það voru þeir Þorgeir Ragnar Pálsson úr GÁS og Jóhann Ólafur Jónsson úr GR.
Glæsileg verðlaun voru veitt fyrir 16 efstu liðin og fór verðlaunaafhending fram í golfskálanum Grafarholti að móti loknu nú í kvöld. Nándarverðlaun voru veitt þeim sem var næstur holu á öllum par 3 brautum vallar, bæði á laugardag og sunnudag og unnu þessir kylfingar til verðlauna:
Laugardagur:
2.braut – Jóhann Ólafur Jónsson, 0,64m
6.braut – Oddný Þóra Baldvinsdóttir, 0,95m
11.braut – Halldór Guðjónsson, 2,56m
17.braut – Ruth Einars, 1,63m
Sunnudagur:
2.braut – Jón Sveinbjörn, 1,97m
6.braut – Ása Margrét Jónsdóttir, 0,29m
11.braut – Magnús Ingi, 0,71m
17.braut – Ívar Ásgrímsson, 4,90m
Úrslit mótsins er að finna hér opnagr.2019_urslit.pdf
Við þökkum keppendum öllum fyrir þátttökuna um helgina og og óskum sigurvegurum til hamingju með sinn árangur. Þau lið sem enduðu í verðlaunasæti en voru ekki viðstödd verðlaunaafhendingu geta haft samband við skrifstofu klúbbsins í síma 585-0200 eða sent tölvupóst á dora@grgolf.is
Einnig færum við Rolf Johansen & Co. bestu þakkir fyrir að vera styrktaraðili mótsins.
Golfklúbbur Reykjavíkur