Opna GR / Klaki mótið verður haldið á Grafarholtsvelli laugardaginn 21. júlí og er mótið 18 holur. Ræst er út frá kl.8:00. Leikfyrirkomulag mótsins er Betri bolti, tveir leikmenn mynda lið og er leikin punktakeppni. Hámarks forgjöf er gefin 18 hjá körlum og konum, eða eitt högg á holu.
Að móti loknu verður haldin verðlaunaafhending sem verður nánar auglýst síðar út frá þátttöku. Verðlaunaafhending fer þannig fram að allir vinningar mótsins verða á verðlaunaborði. Það lið sem er í fyrsta sæti fær að fara fyrst upp og velja sín verðlaun, svo koll af kolli.
Skráning hefst mánudaginn 16. júlí kl. 11:00 á www.golf.is Þátttökugjald er kr. 5.000. (á mann) ATH: Mikilvægt er að þeir sem ætla að spila saman í liði séu skráð hlið við hlið í rástíma á golf.is. Greiða þarf mótsgjald við skráningu.
Veitt eru glæsileg verðlaun fyrir 11 efstu sætin. Nándarverðlaun eru veitt á öllum par 3 holum vallarins. Verðlaunin eru ekki af verri endanum.
Verðlaun:
- Gjafabréf frá Vita Ferðum x 2 að upphæð 100.000 kr. hvert
- FJ golfpeysa, FJ golfbolur og FJ golfbuxur x 2
- Flug innanlands að eigin vali með Air Iceland Connect x 2
- Flug innanlands að eigin vali með Air Iceland Connect x 2
- Flug innanlands að eigin vali með Air Iceland Connect x 2
- Golfskór frá ECCO x 2
- Golfpokar frá ECCO x 2
- Sun Mountain Speedcart V1 þriggja hjóla kerra frá Örninngolf x 2
- Golfhringur fyrir fjóra á Grafarholtsvelli + matur að hring loknum x 2
- Golfhringur fyrir fjóra á Korpu + matur að hring loknum x 2
- Platínukort í Bása að verðmæti 10.950 kr. x 2
Allir keppendur fá teiggjafir frá Rolf Johansen & Company.
Golfklúbbur Reykjavíkur
Kappleikjanefnd