OPNA ICEWEAR haldið á Korpu sunnudaginn 6. júní – fyrsta opna mót sumarsins

OPNA ICEWEAR haldið á Korpu sunnudaginn 6. júní – fyrsta opna mót sumarsins

OPNA ICEWEAR mótið verður haldið í fyrsta sinn á Korpu sunnudaginn 6. júní. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og höggleikur. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Lykkjur mótsins verða Sjórinn/Áin og verður ræst verður út frá kl. 08:00. Korpúlfsstaðavöllur hefur komið frábærlega vel undan mildum vetri og mikil tilhlökkun að taka á móti kylfingum á þessu fyrsta opna móti ársins.

Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 4 efstu sætin í punktakeppni í karla- og kvennaflokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor auk nándarverðlauna á öllum par 3 brautum vallarins.

Skráning í mótið hefst þriðjudaginn 1. júní kl. 13:00 í mótaskrá á Golfbox. Mótsgjald er kr. 5.600 og greiðist við skráningu. Allir keppendur fá afhenta teiggjöf frá ICEWEAR við útræsingu.

Verðlaun í OPNA ICEWEAR mótinu:

Karlaflokkur - punktakeppni:

  1. Gjafabréf að verðmæti kr. 50.000
  2. Gjafabréf að verðmæti kr. 40.000
  3. Gjafabréf að verðmæti kr. 25.000
  4. Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000

Kvennaflokkur - punktakeppni:

  1. Gjafabréf að verðmæti kr. 50.000
  2. Gjafabréf að verðmæti kr. 40.000
  3. Gjafabréf að verðmæti kr. 25.000
  4. Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000 

Besta skor: Gjafabréf að verðmæti kr. 50.000

Nándarverðlaun:
3.braut - Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000
6.braut - Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000
9.braut - Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000
12.braut - Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000
17.braut - Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000

 

Skráning í mót
Kylfingar skrá sig í mótaskrá á Golfbox ásamt þeim sem þeir vilja hafa með sér í holli.

ATHUGIÐ! Til þess að skrá meðspilara ÞARF að hafa aðildanúmer viðkomandi og skrá það inn, þegar aðildanúmer hefur verið slegið inn er smellt á "Leita" áður en haldið er áfram. 

Rástímar læsast í 180 sekúndur á meðan verið er að reyna að skrá sig, sem þýðir að ef þið sjáið læsta rástíma verðið þið að sýna þolinmæði og hinkra þar til hann aflæsist.

Kylfingar verða að skrá sig í gegnum Golfbox og greiða fyrir mótið við skráningu, sem þýðir að ef þú ert að skrá þig og meðspilara þá greiðir einn fyrir alla við skráningu og þið gerið upp ykkar á milli.

Við vekjum athygli á því að skráning fer eingöngu fram í gegnum vefinn.

Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur - Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag.  Mótsstjóri er Dóra Eyland og er með netfangið dora@grgolf.is

Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við ICEWEAR

Til baka í yfirlit