Opna Ölgerðarmótið verður haldið á Korpu mánudaginn 10. júní. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og er hámarksforgjöf gefin 36 hjá körlum og konum. Lykkjur mótsins verða Sjórinn/Áin. Ræst verður út frá kl. 08:00.
Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni í karla- og kvennaflokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 holum vallarins.
Skráning hefst miðvikudaginn 5. júní kl. 16:00 á www.golf.is. Mótsgjald er kr. 5.000 kr. og greiðist við skráningu. Innifalið teiggjöf frá Ölgerðinni og 20 upphitunarboltar í Básum áður en leikur hefst. Þátttakendur gefa sig fram í afgreiðslu Bása áður en boltar eru afhentir.
Korpa klúbbhús verður með eftirfarandi tilboð fyrir félagsmenn á mótsdegi:
- Korpuborgari með stórum kranabjór á 2.490 kr. - Súpa dagsins og kaffi fylgir.
- Korpuborgari með gosi á 2.290 kr. - Súpa dagsins og kaffi fylgir.
Verðlaun í mótinu:
Karlaflokkur - punktakeppni:
- Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverð í eina nótt ásamt þriggja rétta kvöldverði að hætti hússins fyrir tvo. Gildir á öllum Íslandshótelum. Rúta af Pepsí fylgir einnig.
- Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverð í eina nótt. Gildir á þriggja stjörnu Fosshótelum. Rúta af Pepsí fylgir einnig.
- Gjafabréf, kr. 10.000, hjá Erninum Golfverslun. Rúta af Pepsí fylgir einnig.
Kvennaflokkur - punktakeppni:
- Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverð í eina nótt ásamt þriggja rétta kvöldverði að hætti hússins fyrir tvo. Gildir á öllum Íslandshótelum. Rúta af Pepsí fylgir einnig.
- Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverð í eina nótt. Gildir á þriggja stjörnu Fosshótelum. Rúta af Pepsí fylgir einnig.
- Gjafabréf, kr. 10.000 hjá Erninum Golfverslun. Rúta af Pepsí fylgir einnig.
Höggleikur:
- Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverð í eina nótt ásamt þriggja rétta kvöldverði að hætti hússins fyrir tvo. Gildir á öllum Íslandshótelum. Rúta af Pepsí fylgir einnig.
Nándarverðlaun:
3.braut: Gull (24 x 33 cl) eða 2 kassar Pepsi Max (24 x 33cl) – ef vinningshafi er yngri en 20 ára
6.braut: Gull (24 x 33 cl) eða 2 kassar Pepsi Max (24 x 33cl) – ef vinningshafi er yngri en 20 ára
9.braut: Gull (24 x 33 cl) eða 2 kassar Pepsi Max (24 x 33cl) – ef vinningshafi er yngri en 20 ára
13.braut: Gull (24 x 33 cl) eða 2 kassar Pepsi Max (24 x 33cl) – ef vinningshafi er yngri en 20 ára
17.braut: Gull (24 x 33 cl) eða 2 kassar Pepsi Max (24 x 33cl) – ef vinningshafi er yngri en 20 ára
Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur - Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Harpa Ægisdóttir og er með netfangið harpa@grgolf.is
Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Ölgerðina