Opnunarmót Grafarholts - skráning hefst 2. maí

Opnunarmót Grafarholts - skráning hefst 2. maí

Kæru félagsmenn, þá er komið að fyrsta innanfélagsmóti sumarsins á Grafarholtsvelli. Opnunarmót Grafarholts verður haldið laugardaginn 6. maí og verður völlurinn opnaður með formlegum hætti með mótahaldinu. Mótið er innanfélagsmót, leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Hæst er gefin forgjöf 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Leikið er í tveimur flokkum 0-14 og 14,1 og hærra.

Skráning í mótið hefst þriðjudaginn 2. maí kl.12:00, á www.golf.is, mótsgjald er kr. 3.250 og þarf að greiða við skráningu.

Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Nándarverðlaun verða veitt á öllum par 3 holum vallarins og að auki verða verðlaun fyrir besta skor.

Til að byrja með verður öll bílaumferð á Grafarholtsvelli bönnuð, er það eingöngu gert til að verja völlinn fyrir miklu álagi fyrst um sinn. Send verður út tilkynning um leið og opnað verður fyrir golfbílaumferð þetta sumarið.

Verðlaun í Opnunarmóti Grafarholts

Forgjöf 0 – 14
1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
2.sæti: GR merkt Footjoy peysa
3.sæti: GR merktur Footjoy bolur

Forgjöf 14,1 - og hærra
1.sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
2.sæti: GR merkt Footjoy peysa
3.sæti: GR merktur Footjoy bolur

Besta skor:
1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur

Nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins: Gullkort á æfingasvæði Bása.

Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur - Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Dóra Eyland, dora@grgolf.is

Hlökkum til að sjá ykkur!

Golfklúbbur Reykjavíkur

Til baka í yfirlit