Kæru félagsmenn, þá er komið að öðru innanfélagsmóti sumarsins og nú á Grafarholtsvelli. Opnunarmót Grafarholts verður haldið laugardaginn 4. maí og verður völlurinn opnaður formlega með mótahaldinu. Mótið er innanfélagsmót og er leikfyrirkomulagið punktakeppni. Hæst er gefin forgjöf 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Leikið er í tveimur flokkum 0-14 og 14,1 og hærra.
Skráning í mótið hefst þriðjudaginn 30. apríl kl.12:00, á www.golf.is - mótsgjald er kr. 3.400 og þarf að greiða við skráningu.
Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Nándarverðlaun verða veitt á öllum par 3 holum vallarins og að auki verða verðlaun fyrir besta skor.
Til að byrja með verður öll umferð golfbíla á Grafarholtsvelli bönnuð, er það eingöngu gert til að verja völlinn fyrir miklu álagi fyrst um sinn. Send verður út tilkynning um leið og opnað verður fyrir golfbílaumferð þetta sumarið.
Grafarkotsvöllur og æfingasvæði við Bása opnar formlega á morgun, 1. maí.
Verðlaun í Opnunarmóti Grafarholts:
Forgjöf 0 – 14
1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
2.sæti: GR merkt Footjoy peysa
3.sæti: GR merktur Footjoy bolur
Forgjöf 14,1 - og hærra
1.sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
2.sæti: GR merkt Footjoy peysa
3.sæti: GR merktur Footjoy bolur
Besta skor:
1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins: Gullkort á æfingasvæði Bása.
Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur - Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Harpa Ægisdóttir, harpa@grgolf.is
Hlökkum til að sjá ykkur!
Golfklúbbur Reykjavíkur