Nú styttist í opnun valla og er því gott að rifja upp þær reglur sem gilda hjá Golfklúbbi Reykjavíkur varðandi rástímaskráningar og staðfestingar á bókuðum rástímum. Útlit er fyrir að eftirspurn eftir rástímum verði svipað mikil og á síðasta ári.
Golfvellir GR eru takmarkaðar auðlindir sem mikilvægt er að félagsmenn beri virðingu fyrir. Sú regla mun gilda að félagsmenn skulu afbóka sig í Golfbox með a.m.k. klukkutíma fyrirvara. Ekki er hægt að afbóka ef minna en klukkutími er í rástímann. Mæti félagsmaður ekki í bókaðan rástíma eða virðir ekki klukkutíma afskráningarfrest þá fær viðkomandi eina viðvörun.
Þær reglur sem eru í gildi eru eftirfarandi:
- Staðfesta þarf rástíma í appi eða golfverslun þegar mætt er til leiks
- Sé bókaður rástími EKKI staðfestur í eitt skipti fær félagsmaður viðvörun
- Sé bókaður rástími EKKI staðfestur í tvö skipti verður félagsmaður settur í vikubann frá bókun rástíma á viðkomandi völl
- Virðum rástíma hvors annars og mætum til leiks
Aukið eftirlit verður hjá starfsfólki með bókun og mætingu í rástíma og munum við einnig aðstoða félagsmenn við staðfestingar í Golfbox þegar mætt er til leiks. Í Golfbox appinu geta félagsmenn skráð þig í rástíma og mót, afskráð rástíma, skráð forgjafarhringi, búið til golfvini, skráð tölfræðina þína og margt fleira.
Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér spurt og svarað um GolfBox https://www.golf.is/golfbox/
Heiðarleiki – jákvæðni – agi
Golfsamband Íslands bendir kylfingum á að því fylgir ábyrgð að taka frá og skrá sig á rástíma. Kylfingar þurfa að standa við skuldbindingar sínar gagnvart sínum golfklúbbi, meðspilurum og öðrum kylfingum. Láttu vita tímanlega að þú sért mætt/ur og kynntu þér frest til afskráningar ef eitthvað óvænt kemur upp á. Sjá nánar á golf.is/god-rad
Hlökkum til komandi golftímabils!
Golfklúbbur Reykjavíkur