Rástímar fyrir fyrsta keppnisdag í Reykjavík Junior Open hafa nú verið birtir á golf.is. Mótið verður leikið á Grafarholtsvelli og er ætlað ungmennum yngri en 21 árs. Alls eru 130 keppendur skráðir til leiks og verður keppt í sex flokkum, verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin í hverjum flokki.
Reykjavík Junior Open - rástímar
Þetta er í fyrsta sinn sem Reykjavík Junior Open er haldið og miðað við skráningu er ljóst að áhugi ungra kylfinga er mikill á mótahaldi.
Við látum okkur hlakka til helgarinnar og vonum að veðrið verði ungu kylfingunum hliðhollt.
Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Icelandair Cargo, Kvika banki, Eykt, Sjóvá, Logos og Bonafide