Strandarvöllur verður áfram vinavöllur á komandi sumri

Strandarvöllur verður áfram vinavöllur á komandi sumri

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur undirritað áframhaldandi vinavallasamning við Golfklúbb Hellu og er Strandarvöllur þá tíundi vinavöllur okkar GR-inga á komandi sumri. Samingurinn mun gilda frá 1. maí til 30. september og verður vallargjaldið kr. 2.800.

Þetta er átjánda árið í röð sem klúbbarnir gera með sér vinavallasamning og hafa félagsmenn GR verið duglegir að nýta sér það að spila á Strandarvelli. Hjá Golfklúbbi Hellu er að finna allt það sem kylfingur þarf á að halda bæði fyrir og eftir leik – æfingasvæði og púttflöt auk glæsilegs klúbbhúss sem býður upp á fyrsta flokks veitingar.

Sömu reglur gilda um leik á Strandavelli og á öðrum vinavöllum, félagsmenn GR greiða kr. 2.800 fyrir leik á vellinum sama hvort leiknar eru 9 eða 18 holur. Áður en leikur hefst skulu félagar framvísa félagsskírteini í afgreiðslu og ganga frá greiðslu vallargjalds. Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum sem gert hafa sérstaka samninga um afslætti, sbr. fyrirtækjamót.

Vefsíða Golfklúbbs Hellu

Upplýsingar um alla vinavelli félagsins er að finna hér

Það styttist í golfsumarið - góða helgi!
Golfklúbbur Reykjavíkur

Til baka í yfirlit