Þá er komið að sumarmótaröð GR kvenna árið 2020. Mótaröðin er í samstarfi við Úrval-Útsýn eins og undanfarin ár. Í ár eru spilaðir 6 hringir og telja 3 bestu hringirnir til Úrval-Útsýn Sumarmeistara GR kvenna 2020.
Sumarmótaröðin er punktakeppni og fyrstu verðlaun er golfferð með Úrval-Útsýn. Einnig verða veitt verðlaun fyrir flesta punkta í maí, júní og júlí. Auk þess verða nándarverðlaun á völdum brautum.
Spiladagar eru eftirfarandi:
- 20. maí – Korpa
- 3. júní - Grafarholt
- 24. júní - Korpa
- 1. júlí - Grafarholt
- 15. júlí - Korpa
- 29. júlí - Grafarholt – lokahóf
Konur geta valið sér og skráð sig í rástíma allan mótsdag allt frá því völlur opnar og fram á kvöld. Þar sem mótaröðin hefur ekki frátekna rástíma er nóg að einhver í hollinu sé ritari staðfesti skorið, viðkomandi þarf að vera með forgjöf. Leikmaður þarf að segja frá því að hún sé að taka þátt í golfmóti og óski eftir því að einhver í hollinu sé staðfesti skorið, ekki er nauðsynlegt að aðilinn sé þátttakandi í mótinu. Ritari og leikmaður fara yfir skorið til staðfestingar. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu skrifar leikmaður bara undir sitt kort og skilar því með nafni og kennitölu í kassa í klúbbhúsi og verður skorið skráð og birt á golfboxinu daginn eftir mót.
Mótsgjald fyrir alla sex hringina er kr. 3.000 og greiðist inn á reikn. 537-14-848, kt. 160672-4049.
Fyrsta mót sumarsins er sem fyrr segir miðvikudaginn 20.maí á Korpunni og lykkjan er Sjórinn/Landið. Mæling er á tveimur flötum – 9 og 22 braut.
Hlökkum til að sjá ykkur
Kvennanefnd GR