Golfklúbbur Reykjavíkur auglýsir eftir starfsfólki í golfverslanir fyrir sumarið 2018, golfverslanir klúbbsins eru opnar á tímabilinu maí – september. Um er að ræða störf í Grafarholti annars vegar og Korpúlfsstöðum hins vegar. Opnunartími verslana er frá 07:30-21:00 og er unnið á þrískiptum vöktum.
Starfið felur í sér almenna þjónustu við kylfinga, símsvörun, bókanir rástíma, sölu á golfvarningi, þrif og fleira.
Leitað er eftir einstaklingum sem eru stundvísir, samviskusamir og búa yfir þjónustulund til að sinna félagsmönnum okkar og öðrum kylfingum. Kostur er ef umsækjendur hafa einhverja þekkingu á golfíþróttinni þó ekki sé gerð krafa um slíkt.
Umsóknir skulu berast á netfangið dora@grgolf.is